Nýjustu myndir
13.01.2007 19:59:02 / Mauristi

bæbæbæbæ

Ég hef akveðið að færa mig um setur, verið velkomin!!!!

http://duddinn.bloggar.is/


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 12:59:46 / Mauristi

komin heim

Ég er komin heim, þannig að endilega hafið samband í síma 6919230.

Lovjú all!!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 11:48:10 / Mauristi

Oj oj oj ég er svo þunn!!!!!!

 Oj oj oj oj oj oj!!!! Ég gæti dáið!!!! Ég er með mestu þynnku í heimi!!!!!!

Það var Júlefrúkúst í HIH í gær og fór maður auðvitað!!!. Þetta var ógeðslega gaman en djö sé ég eftir að hafa drukkið svona mikið. Ég held að ég hafi farið einum of langt yfir strikið.

Ég get núna ekki sagt að ég hafi verið rúllandi en jújú vel í því:S Allavegana eru afleiðingar gærdagsins alveg að sýna sitt skærast í dag... Ómæ!!!!

En þetta var gaman!!!

Það sem er á planinu næstu daga er stress stress stress yfir loka verkefninu og svo heim!!!!! Jibbíí!!!

Svona ein mynd af mér frá ´80 afmælinu hennar Evu!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 09:36:21 / Mauristi

Ammóstelpa

Jæja elskurnar, þá er kjellan orðin einu ári eldri en er samt enn ung í anda:D.

Ég vaknaði snemma og fór á æfingu í morgun. Þar sem ég var á tredmillinu að svitna af mér slenið, áttaði ég mig á því að það eru einungis tvær vikur þangað til að ég fer heim 8| 8| 8|.

Ég fékk og er enn í frekar miklu páfagaukakasti (panikakasti) þar sem ég sé ekki fyrir mér að eg muni ná öllu sem ég þarf að gera, sem er allsekki gott. Þar semég ætlaði að vera frekar sniðug og spara pening þá ætlaði ég að búa til flestar gjafirnar sem ég gef sem er bull og vitleysa því að ég hef engann tíma til þess + það að ég á eftir að gera lokaverkefnið mitt!!!! úff þetta er rosalegt.

En allavegana... planið fyrir daginn í dag er ekki það mikið. Fara í skólann klukkann 12, skila stóra hönnunarverkefninu okkar og kannski kíkja á stúdentakaffið í kvöld og fá sér einn bjór.

Ég ætla að leyfa mér að njóta dagsins pínu og reyna að komast yfir þetta stress.

Hér með skipa ég ykkur að njóta hans með mér þó að þið séuð ekki með mér til að gera það!!!  :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 16:53:47 / Mauristi

trallala

Jæja elskurnar!!!! Mér datt í hug að útaf því að þið voruð svona duglegar að commenta hjá mér þá ætla ég bara að svara ykkur öllum í einni færslu!!!.

Guðrún spurði: Ertu að flytja heim for goood?? Þetta er erfiðasta spurningin sem hún hefur getað spurt mig, einmitt núna því að þórdís er í pínulítilli tilvistarkreppu. Sko málið er að eftir hálft ár þá er ég búin að ljúka við tveimur árum og það er að segja fyrstu gráðunni í þessum skóla, sem þýðir að ég er aðstoðarmaður hönnuðar....hvað sem það þýðir. Svo kemur vandinn. ég get tekið eitt og hálft ár í viðbót og fengið bachelorinn en þá þyrfti ég að bíða í hálft ár, vegna þess að námið byrjar ekki fyrr enn á vorönn. Þá þyrfti éga annaðhvort að vera hér og vinna, einmitt ekki það sem ég er alveg til í, þar sem ég er komin með nett ógeð af dan. Eða fara heim, þá þyrfti ég að segja upp íbúðinni, flytja allt draslið mitt heim eða finna einhverja geymslu hér og fara heim að vinna, þá þyrfti ég að koma aftur hingað, finna aðra íbúð, og flytja aftur EÐA flytja heim, taka frí í smá tíma til að vinna og finna eitthvað annað land til að ljúka við nám mitt þannig að Guðrún mín.... ég er að koma heim um jólin,það er það sem ég veit en það er líka það eina sem ég veit í augnablikinu!!.

 Þurý commentaði: þú verður semsagt orðin eins og tannstöngull þegar þú kemur heim...og ég verð eins og fíll. Það eru MJÖG litlar líkur á því að ég verði einsog tannstöngull þegar ég kem heim. Ég fer á æfingu næstum því á hverjum degi en mér finnst ég ekki sjá neinn mun, vonandi gefst ég ekki upp en ég held að ég verði að sjá einhvern mun bráðum svo að ég verði eins dugleg. Kannski ég finni mér eitthvað mjög skemmtilegt til að ýta mér áfram eins og ég gerði seinast. Þið sem munið hvað það var vitið hvað ég á við :D. En Þurý mín, þú munt aldrey líta út einsog fill það get ég lofað þér. Hlakka til að sjá þig!!!!

Ohhh ég vildi að það væri meira jólalegra hjá mér og einsog er heima hjá þér jónína mín, eina sem ég geri sem er jólalegt er að hlusta á gömul jólalög, t.d. eitthvað með sanatra, Dean Martin, Elvis, Marilyn Monroe,Shirley Tempel eða Bing Crosby. Ég hlakka ekkert smá til að koma í heimsókn í jólaandann. Sjáumst fljótlega. Um næstu helgi ætla Eva að halda uppá afmælið sitt og það er ´80 þema með mikið af blingi. Hljómar mjög spennandi. Ég læt ykkur vita hvernig fer og segi ykkur frá öllu slúðrinu.


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 14:00:23 / Mauristi

Jeij!!!! hún er á lífi!!!!!!

Fyrirgefdu dúllurassarnir mínir. Málid er ad thad er brjálad ad gera í skólanum og ég bara nenni ekki ad skrifa. Thad er ekki ad segja ad ég hafi ekkert ad segja... ég hef alltaf eitthvad ad segja ;) en ég bara nenni ekki ad skrifa. Thad sem ég er búin ad vera ad gera seinustu daga er ad gera thúsund verkefni, hugsa,hanna og kaupa jólagjafir, og fara á æfingu. Líf mit snýst einungis um skólann thessa dagana!!! Thar sem Thórdís er ad reyna ad hætta ad reykja, thá hefur henni tekist ad hætta á virkum døgum en strax og vínandinn er kominn í blódid er løngunin alltof mikil ( Já María mín, thú hafdir rétt fyrir thér). Ég kem heim thann 19 des og get ekki bedid. Eg er komin med frekar mikid óged af Danmørku, frekar ljótt ad segja en Thó ad ég sé ordin frekar gód í dønsku thá nenni ég ekki lengru ad kljást vid hana. Thetta er komid nóg. Jæja thetta var nú ekki løng færsla, en ég lofa ad skrifa núna a.m.k einu sinni í viku. Elska ykkur øll!!!!!!

» 4 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 19:04:55 / Mauristi

Var að kaupa miða heim!!!

Missti tvisvar sinnum af ódýrum flugmiða heim..óheppin!!!!

Það sem er á planinu í heimkomuninni er Veggfóður (praktík), fjölskylda, vinir, djamm, Iceland airwaves, taka þátt í hönnunarsamkeppni og slaka á...úfff allt þetta á einum mánuði, finnst ykkur ekki líklegt ;).

Mamma, Pabbi og Silli komu í heimsókn í seinustu viku (sváfu heima hjá Jójó og Óskari), það var svo æðislegt að fá þau. Við gerðum svo margt en samt svo lítið.Silli náði í Amalíu sætu og hún var með þeim næstum allann tímann.Hún er svo yndisleg. Leiðinlegt að við hittum hana svona sjaldan. Einn daginn ætluðum við í lególand en það var lokað þannig að við fórum í Vejle fallegasta og örugglega eina athygglisverða bæinn í danmörku, hann er svo fallegur!!! Annann daginn fóru ég mamma og Silli á ströndina, ég skellti einni brúnku á mig  og við syntum í sjónum. Já íslendingar, það er enn það heitt að það er hægt að fara í sjóinn. 8) 8) Við gerðum margt meira eins og að versla og þau komu í heimsókn til mín.Þetta var hreint út sagt yndislegt, núna bíð ég bara eftir að einhverjir af vinum mínum koma í heimsókn hmmmm....:S

Lítið er annars að frétta... ef þið viljið sjá einhverjar myndir frá djammi með mér og evu þá verðið þið að fara á síðuna hennar evu því kjellan á enga myndavel. Ef einhver á digi myndavél liggjandi í horni að safna ryki þá megið þið endilega lána mér hana :haha:

Við hérna nokkrir krakkar höfum ákveðið að halda matarklúbb. Það er að segja ég, eva, Robin, Matthías og Tabíta.Við skiptumst á að búa til mat handa hópnum, voða gaman, þema er alltaf eitthvað land. Mexico og grikkland er búið og næst er það Japan.. sushi hmmmm....(segir fiskaðdáandinn).

Jæja þá sjáumst við fljótlega krakkar, hlakka til og endilega hafið fljót samband svo ég hafi tíma til að hitta alla, þetta er náttúrulega bara mánuður. Æææ... bíðið nú við... þegar ég hugsa um það þá var símkortið mit í veskinu sem var stolið. ég verð að fá gamla númerið mitt aftur. Eins gott að það taki ekki langann tíma :$ :$

Allavegana sjáumst fljótlega!!!!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.09.2006 16:08:48 / Mauristi

Fréttablaði dúddsa

Jæja elsku besta þurý mín.. því miður gerist ekki það mikið í lífi mínu að ég geti bloggað á hverjum degi.. en þetta er það sem er búið að gerast.

Eftir trega og mjög langdregna þjónustu í íslandsbanka þá eru peningamálin mín að komast í lag. Debbarann er ég komin með í hendurnar og visa skvísa er á leiðinni.

Mamma, pabbi og Silli koma á föstudaginn, (verða í viku) og ætla að hitta dæturnar og systur. Hlakka geggjað mikið til.

Stelpan er komin með nýtt númer og er kannski möguleiki að hún muni opna það gamla en ekki samt í bráð!! síminn er 26993929

Síðan koma stóru fréttirnar.... Birna mín þú verður að vera fljót að panta fimmtudagana þar sem þeir verða fljótir að fara í oktobermánuð. Jú elskurnar, Dúddinn fékk praktíkina hjá Völu Matt í þættinum Veggfóður þannig að komutími er væntanlega þann 29 sept (rétt fyrir helgi :D) og heimferð 2 nóv.

sjáumst fljótlega vííííí!!!!!!!!:D:D:D:D:D:D:D


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.08.2006 09:38:27 / Mauristi

Lífið er erfit

Lokaður sími!

Án djóks krakkar, það er ekki eðlilegt hvað ég er óheppin. Þegar ég kom til dan.Þá voru náttúrulega búið að safnast upp ógreiddir reikningar einsog leigan og lokaður sími:(:(:(, ekkert mál, þá var bara að borga þá. Þannig að, útaf því að það er einungis hægt að taka út 20.000 ísl kr á dag þá þurfti ég að aktiveita danska heimabankann minn þannig að ég gæti borgað allt þetta í einu í gegnum hann. Það átti ekki að vera mikið mál, nema það að það er búið að taka viku bara til að fá leyninúmerið og þá kemst ég að því að það vantar notendanafnið mitt og þá þarf ég örugglega að bíða í aðra viku. 

Ekkert Lán!

Bankinn minn er eitthvað tregur að skilja að skólinn minn er 5 mánuðir hver önn en ekki 4 einsog hjá flestum öðrum skólum. Þannig að, síðan ég kom þá er ég búin að vera að e-mailast (útaf því að ég get ekki hringt) við þjónustufulltrúa í íslandsbanka. Um að fá borgað fyrstu greiðslu í ágúst en ekki í september. Það er búið að taka hálfan mánuð og í raun á ég að eiga von á annarri greiðslu minni bara eftir nokkra daga og ekki búin að fá fyrstu. Æðislegt!!!!

Engir peningar!

Um helgina komu 3 vinir hennar Evu í heimsókn og það var svaka djamm á fimmtudaginn. Svona busadagur svokallaður þar sem var haldið þvílíkt djammdjamm í skólanum og allir frá skólanum komu ekki bara busarnir. Ég var að skemmta mér voða vel og dansaði einsog maniak allt kvöldið. Síðan fer að líða að heimkomu og kjellan fer að taka sig til. Kíkir í töskuna til að vera alveg viss um að hún sé með allt og tekur eftir því að peningaveskinu hennar hafi verið stolið. Æðislegt!!!!. Ég náttúrulega panika, fer á alla barina og spyr hvort að þeir hafi séð veskið en enginn hafði séð það. Mikil leyt var hafin að veskinu en án árangurs. Þá kom að skömmustu hringingunni... að hringja í vísa, hálf full og láta loka öllum kortum. Maður heyrir alveg vonskuna í röddinni þeirra. úfff erfitt!!!!! Já ekki gleyma.. vitið þið hvað það kostar að láta senda sér nýtt kort út. 5400kr!!!!!!!! erum við að tala um ,þau ættu í rauninni að færa mér kortið á silfurplatta hingað til dan miðað við þá vexti sem ég er að borga.

Bara skype.

Til að gera hlutina skemmtilegri þá virkar msn-ið mitt ekki, það kemur alltaf upp troubleshoot en samt er merk að allt sé í lagi. Ef þið vitið hvað ég get gert þá endilega hjálpið mér!!!!

Jæja, þá ætla ég að fara að klára þetta og segja bless til ykkar allra og njótið þess að þið séuð ekki ég í augnablikinu.

K.

Síma-  og peningalausi auminginn! 


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.08.2006 10:07:46 / Mauristi

úff dýrt malt!!!!

Jæja Góða fólk! Ég ætlaði að fylgja trendinuog flytja mig um setur yfir til bloggar.is en þar sem ég er ekki með neinn síma þá er það bara ekki möguleiki, allavegana ekki strax.:evil::evil::evil: lúsablesasíða!!!!

Jæja þá er komið að henni, geggjaða ferðasagan!

Á leið minni á flugvöllinnn, vöruðu fréttir stannslaust við að koma að minnsta kosti tveim tímum fyrir tíma, blabla bla... allavegana allt vitlaust uppá flugvelli!!! en þar sem ég hélt að það væri ekki svona geðveik gæsla hjá þeim sem voru að fara til danmörku bara til bretlands og bandaríkjana, setti ég malt kippu í handfarangurinn minn, til að létta þyngdina. en þegar komið vara að innskráningu var varað við að haf engann fljótandi vökva í töskunni, ekki einu sinni maskara... ég meina maskara, þannig að ég þurfti að setja allt fljótandi niður í tösku, maskarann, maltið, ilmvatn og allt sem olli því að taskan var orðin geðveikt þung og auðvitað þurfti ég að borga yfirvikt. Ég ógeðslega góð með mig spurði hvort að það væri þá ekki hægt að leggja saman það sem ég má hafa með mér í handfarangur og þyngd á tösku saman, þá hefði ég ekki þurft að borga yfirvikt. Hún bara hló að mér!8)8)8)

En sagan er nú ekki búin. Ég er LOKSINS komin í gegnum skoðun og komin á völlinn og ætla að kaupa mér nokkrar dvd sem ég get horft á í vélinni og í lestinni heim. Eftir það fer ég á kaffistofuna, sest niður og fæ mér að drekka og reykja og bíð á meðan tímanum líður. Ég fylgist alltaf með skjánum eftir "go to gate" eða "Boarding" en ekkert svoleiðis kemur. þannig að þegar 10 mín er í flug, þá er ég orðin frekar nervös og fer að hliðinu þar sem fólk situr á gólfinu meðfram veggjunum og bíður eftir að fá að komast í vélina. Ég slæst í hópinn og sest við einhvern vegginn og horfi á lítið barn leika sér að hlaupa fram og til baka og af og til á fólkið sem labbar framjá, annaðhvort æst í að fara í útlandið eða dauðþreytt eftir linnulaust djamm og sóleringuna á ströndinni.Við bíðum og bíðum eftir fluginu okkar og klukkutíma seinna erum við loksins komin í loftið.

Flugið gékk ágætlega, ég horfði á nýjust mynd Sara Jessica Parker ( sex and the city gellan) sem ég man ekki hað heitir en hún er hileríus!!! MÆLI MEÐ HENNI!!!

Loksins loksins komin til Danmörku, dríf mig að finna farangurinn minn og kaupi lestarmiða. Ég held í vonina um að ég fái lest eins fljótt og mögulegt væri en svo var ekki. Næsta lest, 00.11, eftir tvo tíma :cry::cry::cry: Ég var orðin svo þreytt og pirruð. Ég hringdi í Evu því hún ætlaði að taka á móti mér og sagði henni söguna með grátverk!!! Ohhh hvað ég var pirruð, 3 tímar sem fóru í ekkert annað en bíð. Geðveikt stuð! Jibbíkæjeij mó fó!!!!

Þegar ég var komin heim á leið þá langaði mig að deyja oní sæng í marga daga. En þar sem ég á sætustu vinkonu í heimi, þá hafði Eva skreytt alla íbúðina mína með "velkomin til baka litla kaka" og "velkomin heim" plaköt. Plús það að hún var búin að hengja fána útum allt og gaf mér bangsa og nammi. Hún er svo mikið æði sæði... Þetta bjargaði allri ferðinni.

En allavegana... ég er byrjuð í skólanum aftur, bíð óþreyjufull eftir að fá svar frá praktík og hlakka til að sjá ykkur öll aftur vonandi í oktober!!!!!


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 02:25:07 / Mauristi

Tíminn líður hratt, á gervihn.........!!!!!!!!

Hún á afmæli í dag,

Hún á afmæli í dag,

Hún á afmæli hún JÓNÍNA,

Hún á afmæli í dag!!!!!!

Jeeeiiiiiijjjjj!!!!!!!!!!

Hún yndislega systir mín á afmæli í dag og þykir mér ömurlegt að ég geti ekki fagnað honum með henni. Elsku Jónína mín, TIL HAMINGJU MED DAGINN, ég vona svo innilega að hann hafi verið góður. Ég sakna þín mest allra og ég vona að við getum hist meira en við höfum gert síðastliðið ár. Ég elska þig útaf lífinu og hlakka ekkert smá til að sjá þig!!!!!!

Lovjú baby!!!!!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 15:29:22 / Mauristi

Brúsó!!!!

Heij heij brúsógellur, Það er greinilegt að við verðum að fara að hittast. það vantar bara tvö comment í viðbót og þá er hópurinn kominn. Soffia mín, þú þekkir lífið hér í bænum. Maður djammar og skemmtir sér svo mikið að maður kemur sér ekki í það að blogga. Ég vinn núna í atlantsoliu og er að skúra með því. Ekkert sérlega skemmtilegt en eitthvað verður maður að gera. Ég fer heim þann 15 ágúst, frekar seint miðað við það að skólinn byrjar 9 8|8|8| en ég held að það reddist samt. Hvað með þig, hvenær ferð þú???
Lára mín, fyrsta tilraun við að hittast heppnaðist frekar illa þannig að við verðu, að drífa okkur í þessu aftur og af hverju ekki bara að reyna fá allann hópinn með í þetta. Ég reyndar lagði ekki af stað fyrr en 3:30 í bæinn þetta umrædda kvöld og hringdi og hringdi i þig og sissú en fekk ekkert svar, svekkjandi!!! Síðan ætlaði ég að fara inná vegamót og gá hvort að þið væruð þar en röðin var kílómeters löng og ekki möguleiki að koma inn:whut::whut::evil::evil: En við verðum að bara að reyna að redda eitthverjum stefnu stað fljótlega.
Hæ elsku eva mín, ertu svo loksins komin heim. Gúúúúúd!!! hvað ég er búin að sakna þín og hlakka til að sjá þig. Ég vona að það hafi verið geðveikt í Flórens fyrir útan leiðinlegrar byrjunar:$:$:$: Það væri voða gott að ég gæti fengið símanúmer eða eitthvað þannig að ég gæti náð í þig líka. En hérna kemur það Símanúmerið mitt er 6919230 og drífum okkur í því að hittast, helst heilt kvöld þar sem við getum blaðrað þvílíkt mikið... sjáumst!!!!

» 6 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 13:44:15 / Mauristi

bæjarferð!!!!

Halló Halló Island. Kjellan er mætt á landið og er til í djammið. Ég kom á laugardaginn sveitt og þreytt eftir erfiðis ferðadag en lét það ekki stoppa mig. Ég lenti klukkan 12 að miðnætti að Íslenskum tíma og var tekið á móti manni með yndislegri töskuleit af þessu dugnaðar fólki í tollinum. Það var gramsað og leitað og hélt maður í vonina um að þau myndu nú ekki sjá óhreinu nærbuxurnar mínar eða eitthverju þvíumlíkt. Kjellan var nú næstum alveg lögleg og komst óhult úr hættunnar höndum. Þó að kjellan sé bara nýkomin heim, þá gat hún ekki beðið í viku eftir að fara að djamma næst þannig að hún skellti sér í bæinn þar sem Þurý og María biðu eftir mer. Þó að bæjarferðin var nú ekki atburðamikil þá skemmtum við okkur þvílíkt vel og dönsuðum til klukkan 6 um morguninn... Þ.e.a.s til klukkan 8 hjá mér... úfffff!!!!! En krakkar Þórdís er ekki komin hingað til að slappa af. Endilega hringið og látið mig vita ef þið viljið hittast, I´m ready!!!!!

» 4 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 15:44:07 / Mauristi

Mikid ad gera!!!!

Vegna Internetsleysis a heimilinu hefur verid fatt um fæslur a sidunni minni og verdur ekki fyrr en kjellan er flutt, thad er ad segja ekki fyrr en 15 juni.

Tha hafid thid thad.

Thury min, eg er enn a lifi en thu hafdir rett ad thad er BRJALAD ad gera hja mer. Thad sem eg tharf ad hugsa um thessa dagana er ad gera íbúdina klára fyrir fluttninga, med ad mála, kítta, pakka í kassa og thetta sem fylgir thvi ad flytja. :S:S:S

Sidan er stora skriflega lokaprófid thann 6 juni og hef ég ekki haft thad mikinn tima i ad lesa thannig ad eg ætla ad fara nuna heim og byrja. En svo er ég líka ad skila stóru lokaverkefni i hønnun en er ad verda búin med thad.:S:|:|:|

En thad er ekki einungis leidinlegir hlutir ad gerast hja mer. Thvi mamma min og amma min eru a leidinni til danmørku a morgun JIBBBBÍÍÍÍÍÍÍÍ!!!! :haha::haha::haha::haha:

GET EKKI BEDID!!!!

Verd ad halda åfram ad læra.... månudur thangad til eg kem heim:haha::haha::haha::haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 21:21:53 / Mauristi

úff

Jónína kom í heimsókn til mín í gær og meiri segja svaf eina nótt, gaman gaman!!! Við höfðum það geggjað huggó.

Hún mætti á staðinn um 4 leitið með sætustu sætu með sér. Þar sem sólin skein og hitinn alveg að kæfa okkur, ákváðum við að keyra uppí skóla og labba aðeins um. Við bönkuðum uppá hjá stelpunni sem býr í tilvonandi íbúð minni og urðum fyrir vænu sjokki. Ekki það að það var eitthvað að íbúðinni heldur lifnaðarhætti stelpunnar sem bjó í henni. Sko... við bönkuðum uppá hjá stelpunni án þess að hringja þannig að hún hafði engan tíma til að taka til en samt það var frekar ógeðslegt að kíkja þarna inn. Þegar hún opnaði hurðina, gengum við inní geðveika fúkka og sveitalykt. Það fyrsta sem ég sé eru tvö stór búr með kanínum í andyrinu. Þegar maður gékk inní herbergið var sag útum allt. Þetta var MJÖG óheillandi en þar sem ég er búin að taka við íbúðinni þá er ekkert hægt að gera við þessu. Það er bara eins gott að íbúðin verði sótthreinsuð áður en ég flyt inn. Hvernig er hægt að búa svona, ég bara spyr??? Hins vegar er ég á fyrstu hæð þannið að ég hef smá grasblett fyrir aftan íbúðina þar sem ég get verið í sólbaði og slappað af og horft á hestana sem eru í tveggja metra fjarlægð frá svalahurðinni minni. 8|8|8| Ég get samt ekki beðið eftir því að flytja inn en hins vegar verð ég aðeins í tvær vikur í íbúðinni áður en ég fer heim:S:S En þægjó að vera búin að flytja þegar maður kemur aftur.

Um kvöldið eldaði ég geggjaða kjúklingaréttinn minn og við jónína sötruðum hvítvín og spjölluðum til  hálf tvö um nóttina. Cozy!!!   

Sae later aligator!!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7